GLUGGASKIPTI

GLUGGAVIÐGERÐIR

GLERÍSETNINGAR

Við sérhæfum okkur í gluggaviðgerðum, hvort sem það er að skipta út glerlistum, fúaviðgerðir eða almennt viðhald á gluggum. við notum besta efni sem völ er á, í þéttingum, glerlistum, timbri og málningu.

Fúi í gluggum

Þegar gluggar eru farnir að fúna er oft hægt að gera við þá og lengja þannig líftíma gluggans. Með réttu efni og vinnubrögðum getur oft borgað sig að gera við í stað þess að fá nýjan glugga. Stundum er fúi orðinn það mikill að ekki borgar sig að gera við, og þá þarf að skipta um gluggann.

GLUGGAVIÐGERÐIR

Gluggaskipti

Þegar skipt er um glugga í húsi þarf að vanda til verka. Við sérhæfum okkur í gluggaskiptum, veitum ráðgjöf varðandi val á gluggum eftir aðstæðum, tryggjum að eiangrun og útlit sé eftir hörðustu kröfum og að allir gangi sáttir frá borði.